Útfylling bókhaldsgagna - Nýjar umsóknir um ferðaskrifstofuleyfi
Þegar sótt er um ferðaskrifstofuleyfi ber að skila bókhaldsgögnum vegna ákvörðunar um fjárhæð tryggingar. Bókhaldsgögnin eru á Excel-formi sem umsækjandi þarf að byrja á að vista á eigin tölvu, fylla út og senda með umsókn sem viðhengi. Erla Sigurðardóttir verkefnastjóri hjá Ferðamálastofu leiðbeinir hér um útfyllingu þessara gagna.